25.12.2009 10:42:04 / gardinustong
Gleðileg Jól.
»
15.09.2009 01:38:30 / gardinustong
Ég er á lífi!
Og akkúrat þessa dagana snýst líf mitt um þetta:
Vinnan
(Hlölli)Vinirnir (
Samtökin78Akureyri)
Og horfa á þætti á netinu (True Blood og Blood Ties)
Simple yet satisfying.
»
22.08.2009 23:54:33 / gardinustong
Jæja, þá er helgin hálfnuð, ég er komin heim úr vinnunni, búin að fara í sturtu og komin undir hlýja sæng en finnst eins og ég sé ekki búin að gera neitt í dag, þetta vill gerast þegar allur dagurinn fer í vinnuna, vaknaði rétt fyrir tólf, fór í vinnuna og kom svo heim rúmlega níu, ekki mikið sem maður getur gert eftir það því það er aftur í vinnuna í fyrramálið. Svo ég ákvað að lesa blogg og blogga kanski smá sjálf.
Ég virðist ekki vera eina manneskjan sem er að pæla í framtíðarplönum og námi þessa dagana því það virðast allir vera að spyrja mig útí skólaplön, þegar ég segist ekki vera að fara í skólann þessa önn kemur alltaf spurningin, "En þú ætlar aftur er það ekki?" eða spurningar um hvað ég ætli þá að gera í staðin. Og þar sem ég nenni ekki að byrja langar útskýringar á því að ég viti bara ekkert en sé með margar dyr opnar þá segi ég bara "Jújú, ég fer líklega bara í VMA eftir áramót." Sem er svosem það einfaldasta fyrir mig og það sem ég mun líklegast gera. En í náinni framtíð þá sé ég allavegana frammá að fá aðeins fleiri á vaktir á Hlölla fyrst meirihluti starfsfólks þar er skólafólk og það þarf einhver að manna vaktir sem koma upp á skólatíma, svo ég held ég breiti ekki mikið til næstu tvo mánuðina allavegana, held bara áfram að vinna þar og sé svo til með framhaldið.
»
18.08.2009 22:29:54 / gardinustong
It's fall, schools are starting,
people are coming back to work after their summer vacation, but this
time, I'm not going back to school, I haven't even had a summer
vacation. I'll just be doing the same things I've been doing these past
months, "work, play on computer, sleep" and repeat. This is the first
time I'm not going back to school in the fall and it makes me feel like
I've fallen of the train and I'm not quite sure how to get back onto
it, or if I even want to. Maybe I should find a different train this
time. I just feel like I should be having some changes in my life, a
new beginning, like I should be reorganizing my life, throwing out the
old stuff and starting something different. What makes it even worse is
that most of the people around me are making big changes, graduating,
moving to other countries, starting in new schools or new jobs,
everyone seems to be doing something with their life while I'm just
sitting here watching mine go by me. I feel like I should be doing
something, but I just don't know what, I guess all roads are open now,
and I just need to pick one and go down it.
»
14.08.2009 00:59:11 / gardinustong
Ég var að borða geðveikt curry í kvöldmat og núna er ég að munsha á muffins sem ég bakaði í dag. James bjó líka til súpu til að hafa með sér í vinnuna á morgun og bjó til smá auka fyrir mig til að hafa í hádegismat á morgun.
Hefði verið alveg awesome dagur í dag ef ég væri ekki sí hnerrandi og með hausverk... ég er búin að reyna að telja mér trú um að þetta sé bara ofnæmi en ég held ég sé að fá kvef, sem sökkar feitan því ég er að vinna alla helgina og hef ekki efni á að missa úr neina vinnu.
»
06.08.2009 19:54:26 / gardinustong
Líf mitt er svo gífurlega spennandi að ég veit ekki hvar ég á að byrja. Akkúrat núna er ég að éta pólskt (held ég) súkkulaði úr pólsku búðinni á horninu, þetta er alveg meiriháttar gott súkkulaði, með einhverskonar jarðaberjahlaupi inní. Þetta súkkulaði er með því merkilegra sem gerst hefur í mínu lífi uppá síðkastið, enda er þetta alveg meiriháttar gott súkkulaði. Síðustu vikurnar hafa í grunnatriðum verið svona:
Á virkum dögum. Vakna kringum 4 á dagin, dóla mér í tölvunni til 7, éta, spila City of heroes eða einhvern svipaðan tölvuleik til 3 um nóttina, með pásum til að éta, dóla mér meira í tölvunni, fara að sofa kringum 6 á morgnana. Endurtaka.
Um helgar. Vinna.
Ekki mikið til að segja frá, sem útsýrir bloggleysi síðasta mánaðar eða svo. Í gær ákvað ég svo að brjóta munstrið aðeins og vaskaði upp tveggja vikna skammt af uppvaski og tók til í eldhúsinu og stofunni. Við fengum líka húsaleigubætur og James fór í búðina með þann pening og við eigum núna fullt eldhús af mat. Hamingja! Ég er jafnvel að velta fyrir mér að fara út úr húsi í kvöld, kíkja kanski á kaffihús eða eitthvað sniðugt þannig. Núna ætla ég hinsvegar að fara og setja vinnufötin mín í þvott fyrir morgundaginn.
»
14.07.2009 23:31:08 / gardinustong
Halló halló, komin heim eftir langa helgi af rokki, drykkju og subbuskap á Eistnaflugi, Neskaupsstað. Það var ógeðslega gaman, ógeðslega sóðalegt og ógeðslega kalt, enda er ég komin með þetta líka slæma kvef, hóstandi og hnerrandi og allur pakkinn. Ég er líka fegin að ég þarf ekkert að vinna fyrr en um helgina og skíthrædd við að verða veik yfir helgina, hef ekki efni á að missa úr meiri vinnu, er búin að vera veik svo oft í sumar.

Klippur úr myndbandi úr myndavélinni hennar Aldísar, þetta hefur verið um á milli 4 og 6 á sunnudagsmorgni. Þetta var alveg örugglega eitthvað sem varð að prófa einusinni um æfina, og ég efast um að ég geri þetta aftur í bráð.
»
23.06.2009 22:31:02 / gardinustong
Komin tími á blogg fyrir löngu.
Síðasta vika hefur svosem ekkert verið frábrugðin öðrum, dunda mér mest heima að lesa ísfólkið eða að horfa á Buffy the Vampire Slayer þegar ég er ekki í vinnunni, Erla sambýlingur er með allar 7 seríurnar að láni hjá Rakel vinkonu okkar og svo er ég líka komin með Sims 3 og hef verið að spila hann eins og brjálæðingur, fullt af flottum nýjum hlutum til að gera en ég fer ekki að kvelja fólk með því að tuða um þá hér. Svo já, ég hef víst ekki átt mikið félagslíf uppá síðkastið eða líf yfirleitt nema kanski í Sims.
Ég gerði svosem ekki mikið af því að spila tölvuleiki að horfa á sjónvarp yfir helgina því ég var að vinna í Strax og þar sem þetta var bílahelgin var alveg brjálað að gera, enda tjaldstæði á bakvið Strax og búðin fylltist af fólki sem kom til að horfa á flotta bíla og drekka sig fulla.
Á laugardaginn var hringt í mig og ég beðin að passa Tvist, hundinn hans Dúa bróður um nóttina því hundapían var eitthvað lasin, svo ég gisti aðfararnótt sunnudags heima hjá Dúa og Maríu á meðan þau voru í rvk. Rétt eftir að ég var beðin að halda Tvist félagsskap var hringt í mig úr hinni vinnunni minni (á Hlöllabátum) og ég beðin að hlaupa í skarðið vegna veikinda og opna staðin á sunnudagsmorgun og vera þar í nokkra tíma þar til ég færi uppí Strax. Það var fáránlegt, það var eins og allir reykvíkingar á aldrinum 18 til 25 væri á Akureyri og komu á Hlölla til að kaupa sér þynnkumat og við bara tvær í afgreiðslunni því helmingurinn af starfsólkinu var annaðhvort í flensu eða ekki í bænum.
Ég fór svo í bíó í kvöld á Hangover, fáránlega fyndin mynd og mæli með henni, allavegana ef þú hefur gaman af ofdrykkju og asnaskap annars fólks.
»
19.06.2009 02:15:17 / gardinustong
Sit og les við kertaljós og ljósið frá skjánum, Ísfólkið eftir Margit Sandemo er búið að búa um sig á náttborðinu mínu síðustu dagana og núna er ég að lesa tólftu bókina við undirsöng Janis Joplin, kósí kvöld hjá mér.
Ég svaf langt framyfir hádegi í dag svo ég komst ekki í helminginn af því sem ég ætlaði að gera í dag, en fyrst ég er með bílinn í láni hjá mömmu tekst mér vonandi að klára þetta á morgun. Ég þarf að fara í banka og á skrifstofur, með flöskur og pappakassa í endurvinnslu, föt til rauða krossins og skifta út bókabunkanum á náttborðinu fyrir nýjann á bókasafninu, svona hlutir sem maður frestar frammogaftur því þeir þurfa svosem ekkert nauðsynlegast að gerast "í dag". En nú er hakinn orðinn svo undirlagður að það kemst ekki fleira á hann og þá er kominn tími til að drífa sig, tekur svosem ekkert langan tíma hver hlutur, fimm mínútur hér og tíu þar en það safnast saman í heilsdagsverk og fyrst ég er með farartæki er fínt að drífa í þessu sem fyrst. En til þess þarf ég fyrst að fara að sofa svo ég geti vaknað.
»
16.06.2009 23:19:20 / gardinustong
Jæja, loksins sest við tölvuna, komin vika síðan ég bloggaði síðast.
Til hamingju með afmælið mamma!
Í dag fór ég í afmæliskaffi hjá mömmu og var vel mætt í það, Þorbjörg með stelpurnar, Heiðrún og Jói með Eirík, Helga og hundinn Ella, ammaogafi, Sigjurbjörg, Sveinbjörn og amma Hlíf kíkti í smástund, svo komu Dúi og María með Tvist þegar hinir voru farnir og Þórður með páfagaukinn í ferðabúri því strax eftir kaffi fóru þau svo suður.
Mamma og Pabbi fara svo á eftir þeim í fyrramálið og verða í viku.
Annars er lítið að frétta af mér sjálfri nema vinna og smá meiri vinna. Fínt að ég verð með bílinn hennar mömmu á meðan hún er í rvk svo ég kemst með flöskur í endurvinnslu og pappakassa sem eru búnir að standa frammi í þvottahúsi/forstofu frá því við fluttum inn fyrir að verða 2 mánuðum. Held það sé kominn tími til að henda þeim.
Já og svo er ég komin með örbylgjuofn, takk fyrir Marcia

fyrir að gefa mér hann og Ella fyrir að koma honum norður. Á samt enþá eftir að kaupa millistykki fyrir rafmagnsinnstungu svo ég hef ekki getað notað hann, en hann er kominn á sinn stað í eldhúsinu.
»
08.06.2009 04:12:36 / gardinustong
Klukkan er fjögur á mánudagsmorgni og ég er enþá vakandi, er sem betur fer ekki að fara að vinna neitt á morgun. Var jafnvel að velta fyrir mér að sleppa því að sofa í nótt en ég held ég sé of þreitt til þess.
Ekki mikið að gerast hjá mér þessa dagana, var að vinna alla helgi og það er fátt fleira um það að segja. Ég keypti nýja Sims leikinn í fyrradag, Sims 3, og er núna að gera tilraun til að setja hann upp í tölvunni minni. Eins og ég sagði er þetta tilraun og ég efast um að hún muni ganga þar sem geisladrifið í tölvunni er í hakki, les diskana bara í þriðja hvert skifti eða svo, sem sökkar

En svona er það, er allavegana að reyna að setja upp Sims þar sem ég hef ekkert betra að gera, og kemst ekki í tölvubúð til að fá nýtt drif fyrr en á morgun, eða á maður að segja í dag? Það er víst kominn mánudagur. En ég á allavegana Sims 3 og get setið við fína nýja skrifborðið mitt og leikið mér í Sims þegar ég er búin að laga tölvuna.
Svo er ég að plana það að fá lánaða myndavél og taka myndir af nýju
íbúðinni og setja hérna inn, þá geta allir njósnað um heimilishagi
mína.
»
02.06.2009 00:34:55 / gardinustong
Mér leiðist og mig langar að gera eitthvað en klukkan er orðin margt og þá er ekki hægt að gera neitt sniðugt. Ég ætti víst að fara að sofa en ég er of uppspennt af leiðindum að ég get ekki sofnað. Þetta er sannkallaður vítahringur...
»
01.06.2009 01:32:24 / gardinustong
Það var kaffi hjá Þorbjörgu í dag og þó ég hafi verið sú eina sem drakk kaffi kom mamma með vöflur, Sóley og Sesselja þeyttu rjóma og svo sat öll fjölskyldan í nýju borðstofunni í Norðurgötunni og átu vöflur og drukku ekki kaffi (nema ég)
Annars hefur þetta verið frekar afkastalítill dagur fyrir mig en í gær tók ég til í herberginu mínu, mamma bíttaði við mig á hreinum og óhreinum þvott og ég skifti um á rúminu, svo þreif ég baðherbergið hátt og lágt sem var frekar subbulegt eftir að Korka kötturinn hennar Erlu ákvað að dreifa kattasandi um það allt um daginn, en það er allavegana kattasands frítt og allt hreint og glansandi núna. Það hægði pínu á mér í hreingerningunum að við erum ekki með ryksugu og ég held ég fari bara og fjárfesti í einni fljótlega þó það hafi ekki verið planið upprunalega. Rosalega getur maður orðið háður þessum tækjum. Ég hef tildæmis verið hálf bækluð síðasta mánuðinn þar sem við fengum ekkert net fyrr en í síðustu viku. Þá voru liðnar rúmar þrjár vikur síðan við fluttum inn og pöntuðum nettengingu, að hugsa sér að fyrir nokkrum árum var netið ekki til.
»